16.5.2011 | 20:43
jæja
EHL var á sundmóti í gær og gekk bara rosalega vel ;) fyrsta mótið hennar af mörgum vonandi ;) BML er stödd hjá pabba þeirra þessa dagana og gengur það bara vel, svo sjáum við bara til þegar sumarfríið byrjar ;)
Vá ég hef bara ekki meira að segja í bili;) ciao
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2011 | 11:04
Í fréttum er þetta helst...

Veðrið heldur áfram sínum tiktúrum og virðist bara engan vegin geta ákveðið hvernig veður á að vera þann daginn! Iss svo lengi sem það verður ekki rosalega mikið um norðanáttina þá er ég svo sem alveg sátt sko

Stelpurnar láta sér líða rosalega vel í skólanum hérna og ég þakka mínum sæla fyrir það. Birna Marija á góða vinkonu sem hún er alltaf með, þær fóru í bíó í fyrrakvöld, passa í gærkvöldi og svo er diskótek á vegum skólans í kvöld...útstáelsið á þessum ungdómi hahahha...
Litla skottan mín hún Emilia Hrönn...sem er nú ekkert lítil lengur...orðin 9 ára...hún er eins og fiðrildi um allar trissur og kemur heim með moldarhrúgur á fötunum sínum og þarf oftar en ekki að hátta sig úr yfirhöfnunum hérna fyrir framan dyrnar...ótrúlegt hvar hún finnur þessa drullu pytti sína
en hún allavega leikur sér þessi elska...þarf eiginlega að ná mynd af henni næst þegar hún kemur heim úr svona "drullumallaferð" eins og hún kallar það...Jæja kellan ætlar að sinna heimilinu núna...ísskápurinn bíður eftir baðinu sínu á miðju eldhúsgólfinu og er orðinn frekar þreyttur á biðinni :)
Þá er ekki fleira í fréttum í kvöld, fréttir verða sagðar næst þegar ég nenni ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2011 | 10:34
Lúkkar ágætlega...so far

Ohhh svo kynntist ég frábærri manneskju síðustu helgi sem ég vona að ég eigi eftir að kynnast enn betur eftir því sem fram líða stundir...daddaraddada...kemur allt með kalda vatninu
Fór á skrall með tveimur vinkonum mínum síðustu helgi og önnur þeirra kom úr höfuðborginni og gisti bara hér hjá mér.
Bless í bili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2011 | 23:26
Ágrip 2010.
og varð að taka sjúkraprófið viku seinna...bahh...Svo ákvað ég að fresta aðeins náminu til að sinna stelpunum mínum...þar sem sú eldri átti í erfiðleikum í skólanum sem hún var í...einelti og rugl sem var látið viðgangast þarna allan veturinn...það voru víst þarna nokkrar stelpur sem fengu að komast upp með að stjórna hverjir fengu að vera með í hinu og þessu og fleira í þeim dúr...á endanum ákvað ég að fyrir haustið þá yrðum við fluttar burt af Keili og þær færu þá í skóla þar sem væri minna rót á krökkum og kennurum.
Nú...við búum sem sagt í Innri-Njarðvík í dag og unum vel okkar hag...stelpurnar ganga í Akurskóla og þeim líður svo vel þar að þær töldu niður dagana í jólafríinu þangað til að skólinn byrjaði aftur...hefði aldrei trúað því...og sú eldri er gjörsamlega að brillera í stærðfræði...barn sem lærði ekki staf í 5.bekk vegna aðstæðna í skólanum...
Hér ætlum við að vera!
Jólunum eyddu þær hjá pabba sínum...ja alveg til klukkan 20 á aðfangadagskvöld þá var hringt og þær vildu koma heim...enda ekki hægt að láta helminginn af pökkunum hanga bara undir trénu og bíða til morguns...best að klára þetta bara á einu bretti

Enduðum svo árið í höfuðborginni hjá mömmu og nutum þess að vera til

Gleðilegt nýtt ár til ykkar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.7.2010 | 16:38
Já sæll...
Jú víst þarf maður þess.
Já ég er sem sagt ennþá á Ásbrú í góðu yfirlæti, smá pása í náminu þar sem ég er ekki alveg með á hreinu hvort ég fer í Keili eða Iðnskólann í Hafnarfirði...já sko núna langar mig mest að læra einhverja hönnun...t.d. textíl...veeeiit samt ekki alveg hvað ég geri...stelpurnar mínar eru í Háaleitisskóla hérna á Ásbrú og gengur þokkalega...þó síður hjá þeirri eldri enda oft erfiðara að skipta um skóla þegar maður er kominn í 5.bekk...litla skottan mín átti auðveldara enda var hún að fara í 2.bekk...núna er það semsagt 6. og 3. bekkur sem þær eru að fara í...almáttugur hvað þær eru orðnar stórar þessar elskur.
Ég held bara áfram að vinna í sjálfri mér og finnst það ganga bara rosalega vel... sjálfstraustið eykst með hverjum deginum og ég get alltaf alls staðar verið ég sjálf

Jæja ég ætla að hætta núna..bæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.6.2009 | 15:11
pabbahelgi
kannski maður fari á eitthvað skrall...en vá..nenni varla að fara á skemmtistaði með þessari búmmbúmmbúmm tónlist..
búin að baka skúffuköku sem EH vildi endilega baka og taka með sér til tata um helgina..auðvitað leyfi ég henni það..bara gaman að þessu
sólin skýn eins og alltaf hérna á vellinum (";
megiði eiga góða helgi
kv
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.6.2009 | 08:20
helgin búin
þetta var alveg æðislega gaman samt sko..
laugardagurinn tók á móti okkur með þvílíkri sól og blíðu..það var bara geggjað veður..en í gær var skýjað og vindur..en samt rosa fínt veður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.6.2009 | 23:04
allt að gerast
fór í Grindavík í kvöld með vinkonu minni og sat þar góðan fund með góðu fólki...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2009 | 17:09
tomorrow ....tomorrow...........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.5.2009 | 08:39
2 dagar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Hugrenningar mínar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 4081
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


amotisol
eddaagn
gumpurinn
helgamagg
hundaland
jonaa
melrakki
papar
robbitomm
snar
tofraljos
hneta




